Bindindisfélag Blöndhlíðinga
Gillon
25.01.2012 17:20:25 / lómax

Ég kálfur

; ">Ég sit hér á kontórnum en það er ekki mikið að gerast.  Það hefur gengið ágætlega í dag og í heildina eru sölurnar þennan mánuðinn orðnar 3, sem er alveg ágætt.  Það hefur líka verið góð og örugg regla á öllu.  Gott skipulag.  Ég kem til með að verða mikið upptekinn þennan mánuð og þann næsta.  Það eru bjóð nánast um hverja helgi en ég ástunda reglusemi. Ég veit ekki hvernig verður með markmiðin þennan mánuð en ég vona það besta.  Ég er annars að fara á skíði bráðlega.  Skíðasvæðið er allt meira eða minna innandyra skilst mér.  En það á samt að vera hægt að skíða þarna.  Svo spila ég fótbolta með Lundunum á fimmtudögum. Það heldur mér í góðu (sæmilegu formi). Ég hef ekki lent í miklum illdeilum við vinnufélaga mína en það kemur þó fyrir að ég reiðist.  Ég er samt aldrei reiður lengi í einu.  Í gær var ég reiður í smátíma en í dag er ég alveg sallarólegur.   />


» 21 hafa sagt sína skoðun

25.12.2011 11:53:17 / lómax

Gleðileg jól

Bindindisfélag Blöndhlíðinga óskar landsmönnum öllum nær og fjær gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.  Guð blessi Ísland.

» 55 hafa sagt sína skoðun

23.12.2011 16:56:35 / lómax

Jólin koma

Ég sit hér á kontórnum.  Flestir eru farnir heim, ég er aðallega að bíða eftir því að fara á flugvöllinn.  Mér finnst það heldur snemmt núna.  Klukkan er bara 16.30, vélin fer ekki fyrr en 20.35.  Nú, það er stutt að fara á flugvöllinn og auðvelt að komast þangað þannig að ég er ekkert sérstaklega stressaður.  Ég náði markmiði mínu þennan mánuð en það munaði samt ekki miklu að það tækist ekki.  Desember er yfirleitt erfiður þegar kemur að sölumálum.  Sérstaklega er erfitt að eiga við Norðmennina.  Þeir vilja helst ekki kaupa nokkurn skapaðan hlut.  Okkur Ragnmóði hefur komið vel saman að undanförnu og tölum stundum saman.  Um síðustu helgi var veisla.  Ég fór og það fyrsta sem ég sá var afar fáklædd kona með stóran snák um hálsinn.  Snákurinn var gulur og sleipur.  Ég var ekki viss um hvort ég ætti að horfa meira á fáklæddu konuna eða snákinn en ákvað að lokum að mér fyndist konan vera flottari.  Helgina áður var jólaveisla í notalegu húsi.  Helgina þar áður fór ég til Hull.  Þar er alltaf ákaflega gott að koma og borða kökur.  Ég er alltaf að vinna í þessu með mannlegu samskiptin og svo er ég farinn að drekka vatn.  

» 2 hafa sagt sína skoðun

12.12.2011 09:29:49 / lómax

Næturkossar


Sú smáskífa sem er kynnt hér að neðan kom formlega út í gær. Einungis 6 eintök hafa verið framleidd en fleiri eru í deiglunni. Um daginn var lagið sett á vallista yfir þau lög sem til greina þykja koma á Vinsældarlista Rásar 2. Hér má prufa að kjósa:

http://ruv.is/topp30

» 41 hafa sagt sína skoðun

06.12.2011 11:53:45 / lómax

Næturkossar


Um þessar mundir burðast Skáldið við það að framleiða smáskífuna "Næturkossar" (max 10 eintök).
Lagið hefur birst á ýmsum vefsíðum (sjá neðar) en ekki fengið ákveðinn útgáfudag. Eitt eintak er til af smáskífunni.
Þessi smáskífa inniheldur tvær útgáfur af tiltillaginu, annarsvegar glænýja þar sem frændi Skáldsins,
Sæþór Már syngur baksöng og hinsvegar rúmega 10 ára gamla heimatöku þar sem bróðir Skáldsins, Óli Þór syngur með honum bakraddir, en hann er jafnframt meðhöfundur lagsins. Þriðja lagið er lag Skáldsins við ljóð skáldkonunnar, Ingunnar Snædal, "Komin til að vera, nóttin" úr samnefndri ljóðabók.

Er smáskífa þessi hugsuð sem önnur smáskífa (annar fyrirrennari) væntanlegrar plötu ´Næturgárun´, en útgáfa hennar er fyrirhuguð í byrjun næsta árs.
Áður kom út smáskífan ´Blindaður af ást´.

Linkar á smáskífulagið:
http://www.youtube.com/user/thorgillon
http://rjominn.is/2011/12/06/gillon-naeturkossar/
http://soundcloud.com/gillon/naeturkossar
http://www.feykir.is/archives/43969

» 16 hafa sagt sína skoðun

16.11.2011 17:04:17 / lómax

Guðlax

Mér líður ágætlega núna.  Það eru ekkert sérstaklega mörg öngur, en það kann allt að breytast.  Ég vinn nokkuð reglulegan vinnutíma (ég mæti yfirleitt frekar seint og fer snemma heim, þannig finnst mér langbest að vinna).  Mér er einnig sagt að ég leggi lítið til þegar kemur að vinnu, þ.e. að ég sé ekki mög vinnusamur.  Þá er mér sagt að það sem mér sé sett fyrir, sé töluvert minna en öðrum er sett fyrir.  Þetta er kannski alveg rétt, ég veit það ekki.  Þá er mér sagt að ég sé reglulega vondur maður og að illska mín komi niður á öðrum.  Annars fór ég í veislu á laugardaginn.  Ég drakk ekkert mjög mikið.  Ég fór líka snemma heim, sem var alveg ágætt.  Ég hef einnig ráðið tvo tískukónga til að fara með mér að kaupa föt á laugardaginn.  Ég ætla að kaupa mér fallega yfirhöfn.  Svo mun ég koma heim um jólin.  Ég ætla að reyna að æfa mig í mannlegum samskiptum og reyna að gera ekki nokkra manneskju reiða meðan ég er á Íslandi.  Vonandi gengur það eftir. 

» 50 hafa sagt sína skoðun

15.11.2011 11:48:09 / lómax

Contalgen Funeral


Ég tel afar sterkar líkur á því að Prófessor Vandráður verði í næstu mynd, en ég hef aðeins verið að rýna í Fjársjóð Rögnvaldar Rauða og þar teflir Vandráður fram hákarlakafbáti.

                                                                                                              -Skáldið


Contalgen Funeral – Á túr

Hljómsveitin Contalgen Funeral heldur í tónleikaferð um Norðurland vestra dagana 17.-20. nóv. og spilar blússkotið kántrýrokk á Laugarbakka, Skagaströnd og Blönduósi og endar tónleikaferðina í heimabænum Sauðárkróki, sem jafnframt eru fyrstu tónleikar bandsins á heimaslóð.

Dagskráin er eftirfarandi:

Fimmtudagur 17. nóvember.

Félagsheimilið á Laugarbakka kl 20:00.

Föstudagur 18. nóvember.

Eyvindarstofan Blönduós kl 20:00.

Kántrýbær Skagaströnd kl 23:00.

Sunnudagur 20. nóvember.

Sauðárkrókskirkja kl 20:00.

Aðgangseyrir er 500 kr. en frítt verður inn í Sauðárkrókskirkju í tilefni þess að þetta verða fyrstu tónleikar hljómsveitarinnar í heimabæ.

Hér að neðan má sjá myndbandið við lagið Charlie:

http://www.youtube.com/watch?v=shPQhG9bENk

facebook.com/contalgenfuneral

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.10.2011 10:29:01 / lómax

Leikafmæli

Skáldið fagnaði 10 ára leikafmæli í gærkveldi í einrúmi en samt í hóp. Í einrúmi þannig að enginn viðstaddur vissi að Skáldið á 10 ára leikafmæli og í hóp þannig að það var í leikhóp.
Skáldið lék ræningjann Kasper og er þetta í 10. skiptið sem Skáldið leikur. Skáldið gat ekkert leikið (getur ekkert leikið) en það henglaðist þarna á sviðinu og muldraði einhverjar setningar og kveikti sér svo í sígarettu með refnum og þeir hlógu saman, en mest vegna þess að þeir skildu ekki hvern annan og fannst það svo fyndið.
Skáldið stefnir á frekari leik í framtíðinni, en með hléum þó.

» 53 hafa sagt sína skoðun

22.10.2011 15:45:14 / lómax

Laugardagur

Ég reyni ávallt að hafa fullkomna reglu á mínu lífi en það gengur misjafnlega.  Á þriðjudögum eru kóræfingar.  Svo spila ég fótbolta á miðvikudögum.  Svo fer ég út að borða á fimmtudögum.  Um helgar reyni ég svo að hafa eitthvað fyrir stafni. Þetta geri ég allt til að reyna að forðast óreglu og til að forðast að þurfa að hugsa of mikið.  Óregla er slæm.  Um síðustu helgi varð því miður óregla á lífi mínu. Ég fór og aðstoðaði fólk við flutninga.  Á eftir fórum við á krá og fengum okkur aðeins í aðra tána.  Þá hringdi ég í Magisterinn og dylgjaði.  Ég get ekki leynt því að þegar óregla er á lífi mínu hef ég ógurlega gaman af því að hringja í Magisterinn og dylgja.  Svo komu foreldrar mínir í heimsókn.  Þá fór allt fullkomlega úr skorðum.  Þegar þannig er komið veit ég ekkert hvernig á að bregaðst við.  Það er annars nóg að gera í vinnunni.  Mér hefur tekist að gera nokkra samstarfsfélaga brjálaða, helst með því að kasta í þá sykurpokum.  Mér finnst það alveg ógurlega gaman.  Svo hef ég einnig gaman af því að dylgja og reyna að æsa þá upp. Stundum tekst það nokkuð vel. Mér er líka sagt í vinnunni að ég sé reglulega vondur maður. 

» 15 hafa sagt sína skoðun

13.10.2011 11:30:34 / lómax

Í húsi prestsins eru margar vistarverur

Fasteign til sölu:



Sjá nánar hér.

Hvað virðist prestinum um þetta?

» 29 hafa sagt sína skoðun

29.09.2011 23:00:00 / lómax

Víða til þess vott ég fann

Frá því í febrúar 2006 hefur verið skrifað á þessa síðu í hverjum einasta mánuði, stundum einu sinni, stundum oftar, og aldrei fallið úr mánuður.

Skrif þessi eru af ýmsum toga og mismerkileg.  Presturinn segir frá uppákomum í starfi, daglegu lífi, matmálstímum og illdeilum við fólk.  Skáldið skrifar leikþætti og segir frá útgáfum, stundum segir það frá þeim vandamálum sem eilíflega virðast þurfa að plaga blessuð skáldin.  Magisterinn segir frá hinum margvíslegustu undrum og dæmalausustu stórmerkjum; oftast er presturinn þar í aðalhlutverki.

Í framhaldi af þessum skrifum skapast oft fjörugar umræður, sem sjaldnast snúast þó um innihald færslunnar, heldur er rætt um daginn og veginn.  Núorðið eru það einkum skáldið, presturinn, morrinn, magisterinn og múrarinn sem taka til máls.  Sumar þessara persóna eru margklofnar.  Stundum dúkka upp menn eins og skríbentinn, sem hleypa öllu í bál og brand.  Phannie hefur ekki látið í sér heyra lengi.  Hvar ætli hún sé?

Ekki er allt í þessum umræðum jafn gáfulegt eða uppbyggjandi.  Eitt er þó víst, að þær eru ca. sjöhundruðu sinnum betri en flestar aðrar umræður á netinu, sem einkennast flestar af ömurlegu rövli, smásálarhugsun, heimsku og nærri algerum skorti á hæfileikum til að tjá sig á réttri íslensku.

Þessi færsla er skrifuð til þess að september 2011 verði ekki fyrstu mánuðurinn í óslitinni keðju 67 mánaða á þessari síðu.  Hún er sjálfsagt hvorki betri né verri en margar aðrar færslur á síðunni.  Í framhaldi af henni munu svo spretta umræður, þar sem skáldið mun rekja raunir sínar, presturinn mun dylgja um magisterinn og magisterinn mun hreyta í prestinn á móti, morrinn mun segja frá veiðiferð og múrarinn lýsa eigin ágæti.

Svoleiðis mun þetta vonandi ganga í aðra 67 mánuði til.


» 37 hafa sagt sína skoðun

01.08.2011 21:37:37 / lómax

Frá Ketubjörgum til Klaustra

Nú verður sagt frá því þegar magisterinn var vélaður af þeim bræðrum prestinum og málafærslumanninum langleiðina fram að Klaustrum í Vesturdal.  Ferðin var skipulögð af prestinum, undir því yfirskyni að rannsaka fiskigengd í Hofsá og Runukvísl.

Lagt var á stað úr Varmahlíð í rauðabítið sl. sunnudagsmorgunn.  Farið var á vagni magistersins, og haldið fram fjörð.  Örskot framan við Mælifell leist lögfræðingnum ekki lengur á veginn og sagði: „Við skulum bara ganga þetta héðan, þetta er örstutt!“  Ekki samsinnti presturinn því, enda orðinn nokkuð við aldur og mæðinn.  „Við skulum aka lengra og fara harðara, í Drottins nafni“, tónaði prestur og hlýddi magisterinn því.  Óku þeir nú sem leið liggur fram í Vesturdal, og fóru hart.  Við Gilji hætti málaflutningsmanninum alveg að lítast á blikuna, en presturinn hvatti magisterinn óspart til að auka enn ferðina, sem hann og gerði.  Stöðvaðist vagn magistersins ekki fyrr en við Lambavað á Runukvísl, og mátti heita stórfurðulegt að þangað kæmist vagninn óbrotinn eftir þá fleygiferð.  Presturinn vill að farið sé óvarlega í slarkferðum, enda er honum sama um hvaða afleiðingar það getur haft.  Eftir því sem presturinn eldist verður hann nefnilega sífellt ónæmari fyrir umhverfi sínu, og skeytingarlaus um menn og verðmæti.  Múrarinn grét alla leið frá Þorljótsstöðum og fram í Runu.

Þegar vagninn hafði verið stöðvaður kom í ljós til hvers magisterinn hafði í raun og veru verið hafður með í ferðalag þetta.  Honum var sum sé uppálagt að bera trúss þeirra bræðra.  Hlóðu þeir nú á magisterinn klyfjum sem hæglega hefðu sligað meðalmann, og hefur malsekkur magistersins sennilega vegið hátt í fimmhundruð pund þegar hann var fullur.  Mest var fyrirferðin í nesti þeirra bæðra.  Þar voru smurðir brauðhleifar með fiski og kjöti, auk mikilla drykkjarfanga.  Presturinn hafði með sér kynstrin öll af suðrænum aldinum, sem hann hefir vanist á þar ytra.

Var svo ferðinni haldið áfram fótgangandi  upp með Runukvísl.  „Allir þessir hyljir eru fullir af fiski“ fullyrtu þeir bræður á leiðinni uppettir.  Ekki tók magisterinn undir það.  Þegar leiðangurinn var kominn langleiðina upp að Klaustrum sagði presturinn að þetta væri orðið gott, hann orkaði ekki meir.  Byrjaði þá veiðiskapurinn, eftir að þeir bræður höfðu étið nokkuð af nesti sínu.  „Hér er allt vaðandi í fiski“ sögðu þeir, en árangurinn lét á sér standa.  Að vísu setti múrarinn í fisk, en presturinn mælti svo fyrir að sá skyldi lifa.  Presturinn er nefnilega vinur lífsins, á sinn hátt.  Síðan óðu þeir bræður niður alla á, án þess að verða varir.  Á meðan skyggndi magisterinn fé í hlíðum og glöggvaði sig á jarðsögu svæðisins og virkjanamöguleikum.  Eina haldreipi þeirra bræðra undir lokin var að fiskurinn lægi við ármótin.  Það brást, eins og annað.

Þeir komu því heim með öngulinn í rassinum; bugaðir menn.  Magisterinn kom hins vegar ánægður heim.  Honum er alltaf svolítil fró í því að vita, að til eru skrýtnari menn en hann sjálfur.



Mynd 1:  Presturinn setur saman veiðistöng sína við Runufoss.  Athugið að hér hefur hann valið að setja stöngina saman á þann hátt, að stangarendinn er fast við skeptið.  Þetta ku vera í móð hjá þeim í ytra.  Múrarinn situr hjá, reiður.  Presturinn er á dönskum skóm, sem hann keypti í kaupfélaginu.


» 119 hafa sagt sína skoðun

26.07.2011 08:30:54 / lómax

Ekki er mark að draumum

Í draumi magistersins liðna nótt kom fram drapplit bifreið af gerð Opel Ascona, ´85 módelið.  Eigandi bifreiðarinnar er vinsamlegast beðinn að gefa sig fram við afgreiðslu.



» 11 hafa sagt sína skoðun

14.07.2011 15:45:16 / lómax

Á næstunni


Rétt í þessu barst tilkynning til ritstjórnar:

Gillon er að fara að gefa út sína fyrstu plötu, Næturgárun og er hún væntanlega tilbúin í september. Fyrsta kynningar- og smáskífulag plötunnar Blindaður af ást hefur þegar komið út og heyrst tvisvar á öldum ljósvakans. Það er einnig hægt að heyra það hér:
http://soundcloud.com/gillon/blindadur-af-ast
http://www.myspace.com/thorgillonmusic
http://www.tonlist.is/Music/Album/779568/gillon/blindadur_af_ast
http://www.youtube.com/user/thorgillon

Gillon mun einnig koma fram á tveimur hátíðum á næstunni, Gærunni í ágúst (http://gaeran.davidorri.com/) og Grund 2011 núna í júlí (http://www.feykir.is/archives/37921).

Á Grund ´97 spilaði Organistinn m.a. jarðarfarasálm yfir manni sem var að drepast áfengisdauða í sófanum.

Skáldið er skiljanlega tvístígandi yfir þessu öllu en hyggst samt frumflytja a.m.k. þrjú lög um helgina á Grund; "Það er af því að þetta er eitthvað svo sveitarómantík - Twin Peaks/Hóla eitthvað sko, í lögunum sko (eða í ljóðunum, semerureyndarekkieftir mig).

Stundum skilur maður ekki þetta skáld.

» 26 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 17
Heimsóknir
Í dag:  24  Alls: 133985
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Könnun
Á Skáldið rétt á því að heyrast í útvarpinu?